 
          
        
      FERMINGARHEFTIÐ
Fæst ekki 1.500 kr.
Höfundar eru finnskir prestar sem hafa unnið mikið að fræðslu og fræðsluefnisútgáfu á vegum finnsku kirkjunnar.
	
	
	Hér er að finna heilmikið að stuttum og hnitmiðuðum verkefnum.
Hægt er að vinna verkefnin beint í bókina. Helsti kostur þessa efnis 
er einfaldleikinn. Efninu í heftinu er skipt upp í þrjú megin þemu sem 
eru;
	
	
	Kærleikurinn, Ég trúi og Guðsþjónustan. 
	
	
	Áhersla er lögð á að fermingarbörnin "pæli” sjálf, ræði um efnið og fari í rannsóknarleiðangra. 
	
	
	Þetta
 efni nýtist vel í hópavinnu og einstaklingsvinnu í kennslustund en 
einnig til heimavinnu.
 Börnin þurfa að hafa Biblíu við hönd en hún er 
til á flestum heimilum. Þetta efni er vel uppbyggt og gefur marga 
áhugaverða og skemmtilega möguleika í fræðslunni.
	
	
	Hægt að að vinna verkefnabókina samhliða bókinni um Jesú eða byrja að nota hana eftir 14 samverustundir með Bókinni um Jesú.