Korka & Greifingi teikna - saga fyrir börn um sorg
Unavailable 2.490 kr.
Korka og Greifingi eru að teikna. Þau teikna ólíkar myndir. En þau teikna bæði alveg rétt. Það er samt dálítið sem Greifingi veit ekki hvort hann gerir alveg rétt. Hvernig á maður að syrgja á réttan hátt þegar einhver er dáinn? Sem betur fer veit Korka að það er ekki hægt að syrgja á rangan hátt. Því við syrgjum öll á okkar eigin hátt. Alveg eins og þegar við erum að teikna.
Það eru margar mismundandi leiðir til þess að syrgja, en engar rangar leiðir. Börn bregðast oft öðruvísi við missi en fullorðnir. Börn geta farið inn og út úr sorginni, og þannig sveiflast úr sorg yfir í gleði á einu augabragði. Bókin gefur tækifæri til þess að tala um tilfinningar sem sorgin getur kallað fram. Unnið í samvinnu við Dönsku sorgarmiðstöðina.