 
          
        
      SANNTRÚAÐI VILLUTRÚARMAÐURINN
Unavailable 3.500 kr.
		
		
		
		
		
		
Í þessari grípandi, en jafnframt ögrandi bók kynnir Peter Rollins trúarsýn á Guð 
			
			
			
			
			
			sem er óháð stofnunum kirkjunnar. Hörð gagnrýni hans á trúarbrögð, er knúin áfram 
			
			
			
			
			
			af ákafri og einbeittri leit að því hvað það merkir raunverulega að fylgja Jesú. 
			
			
			
			
			
			Þessi bók vekur margar áleitnar spurningar.
Hvernig eigum við að tala um það sem engin orð geta fangað?
Í dæmisögum er sannleikurinn tjáður í ljóðrænum staðhæfingum sem veita 
			
			
			
			
			
			okkur innblástur og umbreyta okkur. Dæmisögur snúa á þá þörf okkar að gera 
			
			
			
			
			
			trúarleg fyrirbæri skýr og skiljanleg, því þær neita að vera fangaðar í net einstrengingslegrar túlkunar.
Þær bjóða okkur að hugsa með nýjum hætti sem sneiðir hjá því að negla niður merkinguna 
			
			
			
			
			
			en hugar meira að því að vökva hana með lífi og tilfinningum. 
			
			
			
			
			
			Dæmisögur þessarar bókar eiga fyrst og fremst að breyta hjartalagi okkar, 
			
			
			
			
			
			segir höfundurinn, ekki hugmyndum okkar.
Peter Rollins er rithöfundur og fyrirlesari, sagnamaður og ræðumaður 
		
		
		
		
		
		sem hefur notið alþjóðlegrar hylli fyrir að kollvarpa hefðbundnum hugmyndum um trúarbrögð. Hann vill hvetja kirkjur
		
		
		
		
		
		til að boða fagnaðarerindið um óseðjandi þarfir mannsins, um lífsbaráttuna, og að manneskjan þekki ekki leyndardóminn.
Nánar má kynnast höfundi á www.peterrollins.net
			
			
			
		
		
		
„Ég man þegar ég hlustaði á Pete Rollins segja þessar dæmisögur og hugsaði, Allir verða að heyra þær. Og nú getur þú það." – Rob Bell