Bænabókin okkar - Jóna Hrönn Bolladóttir

Details

Bænabókin okkar - Jóna Hrönn Bolladóttir

Unavailable 6.500 kr.

| /
Select options
Bænabókin okkar: Jóna Hrönn Bolladóttir prestur hefur valið orð úr Biblíunni, skrifað út frá þeim stuttar hugvekjur eða bænakveikjur og fundið bókarköflum yfirskriftir sem snerta hverja manneskju. Hún fékk með sér í bænaskrifin prestana Dag Fannar Magnússon, Hildi...Read more

Bænabókin okkar: Jóna Hrönn Bolladóttir prestur hefur valið orð úr Biblíunni, skrifað út frá þeim stuttar hugvekjur eða bænakveikjur og fundið bókarköflum yfirskriftir sem snerta hverja manneskju. Hún fékk með sér í bænaskrifin prestana Dag Fannar Magnússon, Hildi Eir Bolladóttur, Jóhönnu Magnúsdóttur og Guðmund Brynjólfsson djákna og rithöfund. Allar 132 bænir bókarinnar og tíu trúarjátningar eru frumsamdar. 

 Þessi bók endurspeglar á hverri síðu djúpa lífsþekkingu og sterka vitund um að allt er í Guðs hendi. 

Þemu bænabókarinnar tala beint inn í samtímann og og eru bænirnar og hugleiðingar samdar með almenning í huga, þemun eru: Gleði, gestrisni, foreldraábyrgð, endurfæðing, seigla, skömm, fyrirgefning, reiði, skilyrðslaus kærleikur, sorg, jaðarsetning, samlíðan, virðing, vinátta, hugrekki, innsæi, samfélag, angist, friður, ofbeldi, Krossinn, upprisan. Í lok hvers kafla gefst lesanda kost á að skrifa sína eigin bæn.

Mörg teljum við þakklætið æðst allra dyggða. Hver einasta bæn er þakkarbæn þótt bænarefnin geti verið þung og sár. Bænalíf sýnir okkur veruleikann í öllum sínum litbrigðum með kærleiksaugum Jesú. Bænin  leiðir til sjálfsþekkingar og hjálpar okkur að elska aðra. Þegar við förum að biðja fyrir mönnum og málefnum opnast hjartað og þyrstir eftir réttlæti.
Jesús gaf okkur nýtt boðorð: Að við elskum hvert annað eins og hann hefur elskað okkur. Bænalíf er þátttaka í þeirri viðleitni. Því er svo hollt að biðja. 

Í lokakafla bókarinnar eru auk frumsamdra trárjátninga útskýringar á Sæluboðum Jesú og Boðorðunum tíu. Bókin hefur það hlutverk að veita trúarlega uppörvun og trúfræðslu.