 
          
        
      DAGINN Í DAG 2
Unavailable 1.500 kr.
	
	
	
	
	
	
	Daginn í dag 2 miðlar gildum kristinnar trúar á ferskan máta í þremur 33 mínútna þáttum.
Hafdís og Klemmi eru sem fyrr dugleg að breyta hversdagslegum atburðum í ævintýri. Þau taka m.a. þátt í spennandi kassabílakappakstri, halda hæfileikasýningu og horfa á sjónvarpsþáttinn Nebbnilega áður en þau leggja af stað í sunnudagaskólann.
Þá sjáum við brúðurnar Benna og Nebba eiga í höggi við dularfullan nebbaþjóf!
Á disknum syngur barnahópur tólf sunnudagaskólalög og táknar með tali (TMT).
 Í lok hvers þáttar kemur Tinna táknmálsálfur, sem mörg börn þekkja úr Stundinni okkar, í heimsókn og túlkar einn barnasálm á táknmáli. 
		
	
	
	
	
	
	
Þrjár dæmisögur Jesú eru færðar til nútímans í þáttunum.