
GUÐ Í ÞINNI HENDI - SÖNGBÓK
GUÐ Í ÞINNI HENDI - SÖNGBÓK
Fæst ekki 2.680 kr.
Safnað hefur
verið saman í einkar fallega bók, 130 söngvum og sálmum sem hafa verið
sungnir í æskulýðsstarfi kirkjunnar síðustu árin, sem og nýrri sálmum
og söngvum víða að. Mikil vinna var lögð í lagaval þar sem lögð var
áhersla á fjölbreytta söngva sem henta ungu fólki.
Bókin er ætluð til notkunar í unglingastarfi kirkjunnar en nýtist fyrir mun breiðari aldurshóp við ólíkar aðstæður.
Hverju lagi fylgja nótur og gítargrip sem
er ætlað til að auðvelda þátttakendum í æskulýðsstarfinu að nota bókina
og auka áhuga á tónlist og söng
Þessi bók er unnin á vegum ÆSKR OG ÆSKÞ í samvinnu við söngmálastjóra. Það er von þeirra sem unnu að bókinni að hún eigi eftir að efla söng í æskulýðsstarfinu þar sem söngurinn er mikilvægur þáttur í helgihaldi æskulýðsstarfsins og góðir textar gott veganesti út í lífið.