Bækur um lífið, tilveruna og trúna

BATI FRÁ TILGANGSLEYSI

Lýsing

Fæst ekki 4.300 kr.

| /
Veldu valkost
 verð 4300 - sendingarkostnaður er innifalinn Maðurinn er eina „dýrið“ sem getur dáið úr tilgangsleysi. Hvað er að hjá okkur mannfólkinu? Af hverju getur mannlífið verið svona flókið og sárt? Hvaðan kemur allt þetta vesen?  Í bókinni hans...Lesa meira

 verð 4300 - sendingarkostnaður er innifalinn

Maðurinn er eina „dýrið“ sem getur dáið úr tilgangsleysi. Hvað er að hjá okkur mannfólkinu? Af hverju getur mannlífið verið svona flókið og sárt?
Hvaðan kemur allt þetta vesen?
 Í bókinni hans Bjarna Karlssonar fléttast saman veraldleg og trúarleg hugsun um það sem skiptir máli í dag, að taka ábyrgð gagnvart umhverfi og mennsku.
Hættan eltir okkur á röndum frá ástarmálum yfir í alþjóðamál — og nú ramba vistkerfi jarðar á barmi ójafnvægis í tómu tilgangsleysi.
Hvað er að?
Af sjónarhóli sálgæslunnar heitir það vanvirk hegðun. Skortur á læsi segja ýmsir siðfræðingar og fræðafólk. Í kristinni hefð er rætt um tengslarof.

Í bókinni mætast fræði og sagnir úr ólíkum áttum milli þess sem við prílum upp á baðstofuloftið hjá Bjarti í Sumarhúsum og tökum spjallið. Undir lágri súðinni á heimili allra landsmanna teiknast Sumarhúsaheilkennið upp fyrir augum lesandans uns við blasir inntak og eðli þess víðtæka tengslarofs sem hrjáir mannkyn.