Bækur um lífið, tilveruna og trúna

SANNTRÚAÐI VILLUTRÚARMAÐURINN

Lýsing
Bækur um lífið, tilveruna og trúna

SANNTRÚAÐI VILLUTRÚARMAÐURINN

Fæst ekki 3.500 kr.

| /
Veldu valkost
Í þessari grípandi, en jafnframt ögrandi bók kynnir Peter Rollins trúarsýn á Guð sem er óháð stofnunum kirkjunnar. Hörð gagnrýni hans á trúarbrögð, er knúin áfram af ákafri og einbeittri leit að því hvað það merkir raunverulega að...Lesa meira


Í þessari grípandi, en jafnframt ögrandi bók kynnir Peter Rollins trúarsýn á Guð
sem er óháð stofnunum kirkjunnar. Hörð gagnrýni hans á trúarbrögð, er knúin áfram
af ákafri og einbeittri leit að því hvað það merkir raunverulega að fylgja Jesú.
Þessi bók vekur margar áleitnar spurningar.

 

Hvernig eigum við að tala um það sem engin orð geta fangað?

Í dæmisögum er sannleikurinn tjáður í ljóðrænum staðhæfingum sem veita
okkur innblástur og umbreyta okkur. Dæmisögur snúa á þá þörf okkar að gera
trúarleg fyrirbæri skýr og skiljanleg, því þær neita að vera fangaðar í net einstrengingslegrar túlkunar.

Þær bjóða okkur að hugsa með nýjum hætti sem sneiðir hjá því að negla niður merkinguna
en hugar meira að því að vökva hana með lífi og tilfinningum.
Dæmisögur þessarar bókar eiga fyrst og fremst að breyta hjartalagi okkar,
segir höfundurinn, ekki hugmyndum okkar.

 

Peter Rollins er rithöfundur og fyrirlesari, sagnamaður og ræðumaður
sem hefur notið alþjóðlegrar hylli fyrir að kollvarpa hefðbundnum hugmyndum um trúarbrögð. Hann vill hvetja kirkjur
til að boða fagnaðarerindið um óseðjandi þarfir mannsins, um lífsbaráttuna, og að manneskjan þekki ekki leyndardóminn.

Nánar má kynnast höfundi á www.peterrollins.net

„Ég man þegar ég hlustaði á Pete Rollins segja þessar dæmisögur og hugsaði, Allir verða að heyra þær. Og nú getur þú það." – Rob Bell