Lýsing

Fæst ekki 3.490 kr.

| /
Veldu valkost
Bókin rekur ótrúlega og spennandi sögu handrita sem texti Biblíunnar byggist á. Sagt er frá ævintýralegum handritafundum á sorphaugum og í krukkum í eyðimörkinni. Við sögu koma bedúínar og ísmeygilegir handritasalar sem gefa ekkert eftir og vilja helst...Lesa meira

Bókin rekur ótrúlega og spennandi sögu handrita sem texti Biblíunnar byggist á. Sagt er frá ævintýralegum handritafundum á sorphaugum og í krukkum í eyðimörkinni. Við sögu koma bedúínar og ísmeygilegir handritasalar sem gefa ekkert eftir og vilja helst selja forn biblíuhandrit í sem smæstum bútum til að fá sem mest fyrir þau. Efni sem rithöfundar á borð við Dan Brown og Tom Egeland hafa notað.

Þessi bók gefur þeim ekkert eftir!  Bókin er mjög svo læsileg og fjallar um efni sem lítið hefur verið skrifað um á íslensku.  Stórfróðleg og efnið kemur svo sannarlega á óvart.

NÁNAR UM BÓKINA:

Í bókinni er sögð með einkar lipurlegum hætti hin magnaða saga af tilurð Biblíunnar. 
Bækur sem fjalla sérstaklega um handrit Biblíunnar og tilurð hennar eru sárafáar til á íslensku.Úr því er nú bætt rækilega með þessari greinargóðu bók. Hún er ætluð leikum og lærðum – að auki er hún kjörin sem kennslubók í fræðslustarfi vegna þess að hin áhugaverða og spennandi saga sem hún segir er almenningi næsta lítt kunn.
Handritafundir sem skiptu sköpum fyrir þann texta Biblíunnar sem við höfum nú undir höndum eru raktir í stuttu og skýru máli í bókinni: skinnhandrit Biblíunnar frá fjórðu og fimmtu öld eru kynnt til sögunnar en þau geyma menningar- og trúarverðmæti Vesturlanda. Rakin er saga papýrushandritafunda í Egyptalandi og hvernig þau komust í hendur ástríðufullra safnara og síðar í hendur fræðimanna sem lögðust yfir þau. Frásagnir af fundum sumra handritanna eru líkari spennusögum en nokkru öðru, á það t.d. við um Nag Hammadí-handritin, Bodmer-handritin og Dauðahafshandritin. Bókin dvelst einkum við handrit Nýja testamentisins – bæði papýrusbrot og skinnhandrit – en rekur þó einnig vel ótrúlega sögu stórmerkilegs handrits að Gamla testamentinu sem kallað hefur verið Kórónan frá Aleppó. Auk þess er bókin full af fróðleiksmolum um efni
Skálholtsútgáfan-útgáfufélag þjóðkirkjunnar, hvetur allt kirkjufólk til að kynna sér þessa bók og vekja athygli á henni.