 
          
        
      LÚTHER ÚRVAL RITA I
Fæst ekki 6.900 kr.
Úrval þeirra texta sem Lúther skrifaði þegar barátta hans við andleg og veraldleg yfirvöld stóð sem hæst. 
Flest þeirra rita sem hér birtast koma nú í fyrsta skipti fyrir almenningssjónir á íslensku. 
Í bókinni eru alls 13 rit auk ítarlegs inngangs. Meðal rita eru „Siðbótargreinarnar 95" sem 
Lúther festi á dyr Hallarkirkjunnar í Wittenberg 31. október 1517 og mörkuðu upphaf siðbótarinnar. 
Tvö ritanna tengjast síðarnefnda atburðinum, annars vegar „Varnarræða Lúthers í Worms", einn 
þekktasti ræðutexti evrópskrar sögu, og hins vegar „Sendibréf til Karls V. keisara" sem Lúther 
skrifaði á flótta eftir ríkisþingið í Worms. 
Aðalþýðandi þessa bindis er dr. Gunnar Kristjánsson.