FYRIRGEFNING OG SÁTT

Lýsing

FYRIRGEFNING OG SÁTT

Fæst ekki 2.790 kr.

| /
Veldu valkost
Reiði og ásökun í annars garð er þung byrði að bera, ekki síst nú þegar sársauki og biturð grafa víða um sig í samfélaginu í kjölfar efnahagshrunsins. Í þessa bók skrifa 86 Íslendingar um fyrirgefningu og sátt út...Lesa meira

Reiði og ásökun í annars garð er þung byrði að bera, ekki síst nú þegar sársauki og biturð grafa víða um sig í samfélaginu í kjölfar efnahagshrunsins.

Í þessa bók skrifa 86 Íslendingar um fyrirgefningu og sátt út frá ýmsum sjónarhornum. Mörgum spurningum er varpað fram:

* Er alltaf hægt að fyrirgefa?

* Hvað er iðrun?

* Er reiði eðlileg tilfinning?

* Er hægt að lifa ósáttur?

Þessar og fleiri spurningar glíma höfundar við í óvenjulegum aðstæðum íslensks samfélags nútímans; hvernig þeir taka á fyrirgefningu og sátt í samskiptum við fjölskyldu og maka, vini og vinnufélaga en einnig andspænis veikindum og missi, vonbrigðum og misnotkun.

Höfundar koma víða að úr samfélaginu og túlka mismunandi lífsreynslu.